02.03.2009 21:14:12 / guddahj

Nýtt blogg!



þið getið skoðað nýja bloggið  HÉR  

Ég flyt mig á blogspot - það er tilraun til þess að athuga hvort það sé betra...:)


» 21 hafa sagt sína skoðun

31.01.2009 12:07:41 / guddahj

Niðurstaða:

ég hef komist að niðurstöðu. 
ég hef ákveðið að láta reyna á nýja bloggsíðu Hérna 
en ég ætla að eiga þetta svæði áfram, afþví að ef að ég meika ekki nýja staðinn þá færi ég mig aftur hingað!
jamss...ég reyndar stofnaði þetta blogg fyrir nokkrum dögum... en var ekki viss hvað ég vildi gera...en opinbera hann núna.


endilega kíkið á Hugmyndasvampinn minn

» 16 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 16:58:52 / guddahj

pæling...


ég hef lengi verið að velta því fyrir mér hvort  ég ætti að færa bloggið mitt yfir á betri stað... eins og t.d. blogspot.com, og mig langar það rosalega, þar sem allt gengur mun betur í aðeins betur útpældara kerfi....:) 
en það sem hefur stoppað mig er að mamma mín skrifaði í gestabókina mína hér á þessu bloggi orðin : ég elska þig 
frekar væmið...en fallegt að eiga það þegar að maður hefur ekki mömmu sína hjá sér... og því á ég mjög erfitt með þetta.... en nú togar það enn fastar í mig að færa mig...
 
hvað finnst ykkur að ég eigi að gera??

fara á blogspot
eða 
vera á blogcentral?

» 33 hafa sagt sína skoðun

16.01.2009 20:41:21 / guddahj

langar þig í hamborgara?


ertu að spá í að fá þér nýtt rúm?
finnst þér leiðinlegt að bú um? 

fáðu þér þá bara hamborgara rúm... skellir bara brauðlokinu ofaná og kabúmm....búin að búa um! og svo auðvitað ef maður er með sleepover, þá notar maður bara notað lokið sem auka dýnu:) 

http://cache.wists.com/thumbnails/7/93/793759749d91ec4edaf681b549b0475d-orig


... ég er með ósk til blogglesenda...

nenniði að láta vita af ykkur í kommentum í þetta skipti?? Hvort sem ég þekki ykkur eða ekki.... gefa mér smá upplýsingar um hvað ykkur finnst um blogg og bloggleysu.... gefa mér ábendingar eða innblástur til að halda áfram að blogga:)

lofa að biðja ykkur aldrei um þetta aftur! 

thanx:)


» 30 hafa sagt sína skoðun

11.01.2009 22:46:37 / guddahj

öll ráð eru góð ráð.... í kreppsen....




Ég ætla að pósta hérna tveimur linkum sem sýna hvernig maður á að búa til sinn eiginn stimpil til að stimpa á t.d. dúka eða búa til flott rúmföt.... kíkiði...  ódýrt og sniðugt...(held ég) :)

gott ráð #1 ...ótrúlega sniðugt...

gott ráð #2 ...ótrúlega sniðugt 2!

gangi ykkur vel:)





» 25 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 23:38:38 / guddahj

Þrettándinn...og svo pakkar maður jólunum niður:)


Ég er reyndar búin að pakka niður jólunum hjá mér... fékk satt best að segja nóg af draslinu í kringum mig... það var held ég bara ofgnótt af jólaskrauti hjá mér!
svo ég ákvað að hjálpa ykkur sem eftir eiga að pakka að skipuleggja pakkningarnar:)

...gott er að taka allt niður, sortera skrautið á t.d. borðstofuborðinu



Sniðugt er að nota skókassa og svona ziploc plastpoka til þess að raða hverri sort fyrir sig í....





... það er miklu betra að pakka seríunum vel niður í stað þess að setja þær í eina flækju í poka... t.d. svona....



best er svo að sortera jóladótið með kössunum. T.d. "Aðventa" og "Jólatré" þá er betra að finna rétta kassa í geymslunni um næstu jól...





...og svo er bara að koma þessu í geymslu:)

gangi ykkur vel:)



» 28 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 16:34:50 / guddahj

Annáll fyrir árið 2008


ég hef ákveðið að taka saman árið 2008, líkt og ég hef gert síðastliðin ár:)

Janúar:

  • - Var tekin ákvörðum að fara til Svíþjóðar í Feb með bekknum.
- Byrjuðum við Marín að sauma okkur spangir... þær komu vel út og fengum nóg af pöntunum..og það gekk vel:)
- ég byrjaði í Matarhönnunaráfanganum - Stefnumót við bændur.
- Kristófer varð 9 ára þann 27. Jan.

Febrúar:

- Við bekkurinn minn fórum til Svíþjóðar, eða ölluheldur til Stockholm á hönnunarsýninguna Stockholm Furniture Fair sem er orðin ein stæðsta hönnunarsýning í Evrópu og er hún haldin árlega... þetta var heljarinnar ævintýri, þrátt fyrir brjálað veður þegar við flugum út... Ég skoðaði líka Konstfack University listaskólann... með framhaldsnám í huga:)
-  Kryddlegin hjörtu fæddust, ásamt barnamat, söl-heilsusnakk og Sítróna norðursins í matarhönnunar áfanganum. Ákveðið var að halda áfram að vinna með Kryddlegin hjörtu og Sölsnakkið.

Mars: 

- illa gekk í skólanum sökum sköpunarmorðs...
- Matarmarkaðurinn var haldinn niðrí Grandagarði, þar sem að vörurnar nýju sem fæddust á stefnumóti hönnuða og bænda voru kynntar. Markaðurinn gekk vel, troðfullt af fólki, þó svo að ég hefði viljað sjá fleiri forvitin andlit sem ég þekkti.
- Ný tegund af spöngum komu hjá okkur Maríni:)

Apríl: 

- Eignaðist ég nýja uppáhalds búð KVK á Laugarvegi:)
- Sumarið kom eftir mikla bið...
- Ég byrjaði í lokaáfanga vetrarins, þar sem ég hannaði eldhúsborð... það gekk ekki ein vel og ætla mætti, þar sem að kennaranum líkaði ekki við mig, sem og aðra nemendur... og fengum við að finna fyrir því!

Maí: 

- Sýning var haldin í GÁ húsgöngum í Síðumúla á afrakstri erfiða áfangans.. þar sýndi ég eldhúsborðið mitt sem fékk nafnið Borð-i.
- ég kenndi dyggum blogglesendum að búa til stensil til þess að mála á vegginn.
- Við Nína Dögg fórum í ævintýraferð til Eskifjarðar og skemmtum okkur ótrúlega vel hjá Málmfríði og familý:)
- Svo var farið á 10. ára árgangsmót sem var ótrúlega vel heppnað og skemmtilegt...enda frábært fólk í þessum árgangi mínum!:)

Júní:

- Sumarið kom fyrir alvöru.
- Ég fór í Brúðkaup hjá vinkonu minni henni Hildi Ísdal og Hyrti manninum hennar sem haldi var á Rifi. Gistum í bústaðnum hans Bjarna frænda á Hellnum ásamt Marín, Sjonna og Alex, og Marín passaði á meðan skotist var í brúðkaup:)
- Ísbjörn steig á landið okkar góða..og ég sem ætlaði að eiga hann!
- Hilmar og Gunni áttu báðir afmæli þann 22. júní og farin var bústaðarferð upp í Svínadal.. við allar systurnar með familíur í frábæru veðri...og það var rosalega gaman.
- svo fórum við jómfrúarferðina með fellihýsið... vorum í viku að ferðast um Suðurland.
- byrjað var að smíða pall fyrir utan hjá okkur

Júlí: 

- Írskir dagar voru, Himmi kláraði "dekkið" (gólfið) á pallinum fyrir þá helgi.
- pabbi átti afmæli
- Hilmar kláraði sumarfríið sitt og Nína Dögg byrjaði sitt sumarfrí. 
- farin voru nokkur lítil ferðalög og sumarbústaðarferðir.

Ágúst: 

- um verslunarmannahelgina vorum við á Flúðum og svo á Þingvöllum í góðu veðri.
- Nína byrjaði á nýja leikskólanum sínum..sem er alveg við blokkina okkar...og voða gott að vera þar.
- Ágúst mánuður fór í sundferðir og slökun heimafyrir
- Pallurinn kláraður.
- Lísbet systir mín varð 30. ára
- Skólinn byrjaði og við byrjuðum í áfanga hjá New York búanum Laureen Boym, í samstarfi við Nóa Siríus. 

September:

- Nammi spilið mitt Refskák leit dagsins ljós, gekk rosalega vel og ég er mjög ánægð með útkomuna:)
- Allt mitt ár í LHÍ, ásamt mér, fórum til Istanbúl í viku. Ævintýraferð með meiru og fallegasta borg sem ég hef komið til...frábær ferð í alla staði...nema hefði viljað hafa Himma með:)

Október:

- Nína Dögg varð 3 ára þann 1. Okt 
- Fjármálakreppan skall á... rugl út í eitt.
- Ég byrjaði í lotu 2 í skólanum og byrjaði í áfanganum 105, sem Hrafnkell Birgisson kenndi... frábær áfangi!
- Valdi mér Múlalund til að vinna með í áfanganum 105...skemmtilegur vinnustaður:)
- BA ritgerð byrjaði

Nóvember:

- Skjóðurnar mínar litu dagsins ljós með aðstoð starfsmanna Múlalundar og fengu fínar viðtökur.
- 3 lota byrjaði í skólanum þar sem að við hönnuðum fylgihluti undir leiðsögn Tyrknesku prinsessunnar Emel Kurhan.
- Jóhanna systir mín átti 36 ára afmæli

Desember:

- ég átti 26 ára afmæli.
- Ég skilaði af mér fylgihluta línu og kláraði þar með skólann og komst í jólafrí.
- Ég var lasin frá því að ég kláraði skólann og þangað til jólin komu og gerði þar með ekki mikið þann mánuðinn.
- Jólin komu og voru best
- Inga Birna og Gunni giftu sig 26. des
- Áramótaveisla hjá Stefáni og Hrefnu, bróðir Hilmars og frú.

Gleðilegt ár!



» 23 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 13:18:44 / guddahj

2009











» 27 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 23:54:54 / guddahj

Jólakveðja


Mínir dyggu og kæru blogg-lesendur og vinir:)

Ég óska ykkur öllum Gleðilgegra Jóla og farsældar á komandi ári.

Megi komandi ár færa ykkur gleði og hamingju:)

http://s3.frontur.com/img/36592/20081226000241_0.jpg


Til allra þeirra  sem fengu sent jólakort frá okkur....og þeir sem fengu ekki sent jólakort frá okkur....þá langar mig til þess að benda á að framan á kortinu var þessi mynd af okkur fjölskyldunni. 
Hilmar, Kristófer, Ronja, Nína Dögg, Birta og ég....:)

jólakveðja
Guðrún 

» 23 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 15:54:07 / guddahj

Jólakrans...

sumir gera jólakrans á hverju ári... til þess að hafa á borðinu inni eða til þess að hengja á dyrnar fyrir utan.... yfirleitt eru þeir gerðir úr grenigreinum með rauðum slaufum....

hér koma nokkrar hugmyndir...

Rósakál er tilvalið í kransinn...




og tyggjó/nammikrans... fest á með tannstönglum...



jólakúlur í einni kaos...



garni vafið utan um frauðkúlur og út kemur fallegur krans...



eða bara að vefja garni utanum t.d. útsagaðan hring...



fínn pop-art krans.... :)



svo var ég búin að sjá ótrúlega flottan krans... sem ég bara finn ekki aftur... en hann var gerður úr klaka. En þá er bara sett vatn í hringlaga mót og raðað ofaní það rauðum berjum og grænum laufblöðum og svo sett í frost... ótrúlega skemmtilegur krans:)
ég set myndina inn ef ég finn hana...

jólajóla...


» 23 hafa sagt sína skoðun

11.12.2008 17:59:13 / guddahj

#1 Stekkjastaur



 ...smá hint...

mig langar í...



...ótrúlega elegant kaffibolla eftir Hrafnkel Birgisson




» 20 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 22:26:24 / guddahj

Jólatré - Jólaskraut!

hver vill ekki vera svolítið listrænn í jólaskreytingum í ár???

það væri t.d. mjög töff að vera með eitthvað ákveðið þema í jólaskreytingunum...t.d. að búa til jólatré úr því sem er í kringum þig.....

 hér er bókum í bókahillu raðað eins og jólatré...




pappajólatré sem kemur í svona flat-pack!



Laser-skorið jólatré úr krossvið...



kertastjaki sem er líka jólatré....





glærar flöskur settar í poka og hengdar upp í loftið...



einfalt jólatré úr stiga og seríum...



gamaldags tré troðfullt af jólakúlum...:)



og toppurinn á krepputrjánum.... föndrað úr kartoni:)





bara svona nokkrar hugmyndir til að undirbúa þessi kreppujól:)

gangi ykkur vel:)




» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 21:30:38 / guddahj

þegar piparkökur bakast...

er ekki hefð hjá flestum að baka piparkökur fyrir jólin?

hér koma nokkrar skemmtilegar hugmyndir um hvernig hægt er að skreyta piparkökurnar:)



svo geta tölvunördarnir búið til svona fyrir börnin sín:)



svo er hægt að kaupa snilldar form:)



svo er bara að nota ímyndunaraflið:)

og svo eru allskonar piparköku hús sem ég nenni ekki að setja inn ... en auðvelt að gúgla:)


að lokum vil ég óska afmælisbörnum dagsins, þeim Sveini Kristjáns og Málmfríði vinkonu minni til hamingju með daginn:)



» 23 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 14:35:51 / guddahj

íslensk hönnun í pakkann??



Nú eru allir svo æstir að auglýsa "veljum íslenskt" í kreppunni og íslenskar vörur rokseljast þessa dagana... hvernig væri þá að setja einhverja fallega íslenska hönnun í jólapakkana??

nokkrar góðar hugmyndir...:)

Hillan "Tree Shelf" eftir Þórunni Árnadóttir





"Hot/cold" eftir Stefán Pétur Sólveigarsson

 

Leður-hálsmen-taska eftir Eygló Margrét Lárusdóttur




"Not Rudolf" eftir Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur



og "Raven" eftir Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttir




"Áhöld" eftir Sóley Þórisdóttir




flestar þessar vöuru er hægt að nálgast á vefbúðinni Birkiland sem selur ýmislegt fallegt eftir íslenska hönnuði:)






» 28 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  220  Alls: 147791
Leitarbox

Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 8 maí